Heildarsparnaður eftir verðendurskoðun um hálfur milljarður

Nýafstaðin verðendurskoðun Lyfjastofnunar mun leiða til þess að kostnaður vegna lyfja lækkar. Ávinningurinn skilar sér til Sjúkratrygginga, Landspítala og notenda

Samkvæmt lyfjalögum ber Lyfjastofnun að endurmeta forsendur lyfjaverðs reglulega og eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti. Líta skal til verðs sams konar lyfja annars staðar á Norðurlöndum og koma með tillögur um breytingar ef tilefni er til. Nánar er fjallað um útfærslu í reglugerð nr. 1414/2020.

Verð ávísunarskyldra lyfja var endurskoðað árið 2025

Hámarksverð lyfja frá heildsölu á Íslandi var skoðað í maí 2025 með hliðsjón af verði sömu lyfja í viðmiðunarlöndum, og var lyfjafyrirtækjum gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum eða andmælum.

Fyrirkomulag

Verðendurskoðun fór fram í tvennu lagi.

Í fyrsta hluta var endurskoðað verð leyfisskyldra lyfja í þeim tilvikum þar sem ekki lá fyrir samningur við Landspítala. Ný verð fyrir þennan hluta tóku gildi í lyfjaverðskrá í október 2025.

Í síðari hluta var metið verð kostnaðarsamra almennra lyfja. Undanskilin frá verðendurskoðun voru lyf sem hætta var á að gæti farið að skorta, lyf sem geta jafnframt fengið verðívilnanir eða 20% álag samkvæmt verðlagsreglum. Þessi lyf eru t.d. sýkingalyf, augnlyf, og lyfjaform sem einkum eru ætluð fyrir börn. Ný verð í þessum flokkum tóku gildi 1. janúar 2026.

Haft var samráð við Sjúkratryggingar Íslands og Landspítala um forgangsröðun verðendurskoðunar.

Áætluð niðurstaða – sparnaður gæti orðið hálfur milljarður króna

Ef gert er ráð fyrir að sala í áðurtöldum flokkum sé á ársgrundvelli svipuð því sem var 2024, má ætla að sparnaður Landspítala vegna fyrsta hluta verðendurskoðunar sé um 100 milljónir kr.

Sparnaður vegna annars hluta verðendurskoðunar gæti orðið ríflega 400 milljónir kr., sem kemur þá til góða Sjúkratryggingum og notendum.

Verðendurskoðun vegna samheitalyfja var frestað, en mun fara fram á þessu ári og verður auglýst síðar.

Heildarsparnaður í lyfjakostnaði árið 2025 vegna verðendurskoðunarinnar, miðað við heildsöluverð, er því áætlaður um hálfur milljarður króna á ársgrundvelli.

Síðast uppfært: 28. janúar 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat