Samnorrænt verkefni um lyfjapakkningar framlengt til 1. janúar 2035

Um er að ræða tilraunaverkefni sem miðar að því að bæta aðgengi að mikilvægum lyfjum til notkunar á sjúkrahúsum, með því að heimila lyfjapakkningar með enskum texta

Heimild allra þeirra lyfjafyrirtækja sem þegar eru þátttakendur í samnorræna verkefninu um enska texta með tilteknum sjúkrahúslyfjum, hefur verið framlengd til 1. janúar 2035. Fleiri lyfjafyrirtæki eru hvött til að taka þátt í verkefninu.

Tildrög

Tilraunaverkefni norrænu lyfjastofnananna hófst í ársbyrjun 2025. Til þess var efnt til að bæta aðgengi að mikilvægum lyfjum til notkunar á sjúkrahúsum, en skortur á ýmsum mikilvægum lyfjum hefur verið þrálátur vandi á Norðurlöndum. Það má m.a. rekja til smæðar ríkjanna í alþjóðlegum samanburði, því lyfjaframleiðendur horfa frekar til stærri samfélaga við markaðssetningu lyfja.

Lífsnauðsynleg lyf fyrir fámenna hópa

Skortur vegna smæðar markaðarins kemur einkum og sér í lagi fram þegar um ræðir lífsnauðsynleg lyf fyrir tiltölulega fámenna hópa sjúklinga með sjaldgæfa sjúkdóma. Því getur verið afar krefjandi að tryggja aðgengi að slíkum lyfjum þegar við bætist krafa um sérstakar pakkningar á tungumáli sem fáir tala.

Almenna reglan hvað pakkningar varðar samkvæmt evrópskum lögum, er að lyfjatextar og áletranir séu á máli þess lands þar sem lyfið er notað. Pakkningar sem deilt yrði með enskumælandi þjóðum, svo ekki þurfi sérpakkningar fyrir hvert norrænu landanna, einfalda málið.

Framlengt til að auka svigrúm markaðarins og fjölga þátttakendum

Samnorræna verkefnið um tilteknar lyfjapakkningar á ensku er framlengt til að auka fyrirsjáanleika lyfjafyrirtækjanna sem taka þátt í því. Góðan fyrirvara þurfi fyrir viðamiklar breytingar sem þessar, og sömuleiðis sé vonast til að fleiri fyrirtæki taki þátt í verkefninu.

Rafrænt á máli hvers lands

Sem fyrr segir snýr verkefnið aðeins að sjúkrahúslyfjum og vonast er til að það leiði til betra aðgengis að lyfjum sem brýn þörf er fyrir en vandkvæðum hefur verið bundið að afla. Og þótt prentaðir lyfjatextar og áletranir á pakkningum verði á ensku, munu textarnir verða aðgengilegir rafrænt á máli hvers lands.

Þátttakendur – umsóknir nýrra fyrirtækja

Þau fyrirtæki sem þegar eru þátttakendur í verkefninu munu fyrir miðjan september fá sent uppfært skjal sem staðfestir þátttöku þeirra með framlengdum tíma til 1. janúar 2035.

Ný fyrirtæki – umsókn um þátttöku í samnorrænu verkefni um enskar pakkningar

Leiðbeiningar og upplýsingar um norrænar lyfjapakkningar á ensku

Síðast uppfært: 2. september 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat