Yfirfærsla á vef Lyfjastofnunar í fullum gangi

Verið er að flytja vefefni Lyfjastofnunar yfir á island.is. Áætlað er að flutningum verði að mestu lokið 1. október nk., en vefurinn lyfjastofnun.is verður opinn út árið. Ekki er þörf á neinum aðgerðum notenda

Einsog greint var frá í frétt í sumar hefur verið unnið að því að færa alla vefumsýslu Lyfjastofnunar eins og annarra stofnana yfir á island.is, og gengur yfirfærslan vel. Með breytingunni ætti aðgengi að upplýsingum og þjónustu að verða einfaldara fyrir notendur, auk þess sem vefurinn mun uppfylla nýjustu kröfur um öryggi og aðgengi.

Lyfjastofnun mun halda áfram að veita faglega og áreiðanlega þjónustu í gegnum nýja vefsvæðið.

Dagsetningar vegna flutninganna

Áætlað er að eftirfarandi tímalínu verði fylgt við yfirfærsluna:

  • 1. október 2026: Allt efni Lyfjastofnunar verður komið yfir á island.is. Þar með taldar fréttir sem birtast á báðum stöðum.
  • 28. október 2026: Síðasta fréttin birt á lyfjastofnun.is. Eftir það verða fréttir eingöngu birtar á svæði Lyfjastofnunar á island.is.
  • 1. janúar 2027: Vefurinn lyfjastofnun.is verður ekki aðgengilegur lengur. Notendur sem heimsækja vefinn verða hins vegar sjálfkrafa framsendir á island.is.

Fyrir notendur – aðgerða ekki þörf

Við flutninginn er þess sérstaklega gætt að tengingar við efni rofni ekki. Áskrifendur frétta fá þær áfram, en nú af vef island.is. Ekki er þörf á að uppfæra áskriftina.

Þá er rétt að benda á að ekki er þörf á að uppfæra lyfjatexta til þess að vísa á nýtt vefsvæði Lyfjastofnunar þar sem framsending verður af gamla vefnum yfir á nýja vefsvæðið á island.is. Þess er sérstaklega óskað að markaðsleyfishafar taki ekki til við að senda inn uppfærslur á textum þess efnis.

Eins og áður hefur verið nefnt er sérlyfjaskráin á lyf.is ekki hluti af þessu verkefni og breytist ekkert.

Við hvetjum alla notendur til að fylgjast með og kynna sér nýtt vefumhverfi. Nú þegar er hægt að sjá efni sem flutt hefur verið á svæði Lyfjastofnunar á island.is.

Síðast uppfært: 10. september 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat