27. júlí 2022
Óskráða lyfið Theralene 40 mg/ml dropar (vnr. 989816) hefur verið innkallað.
Sjúklingar sem fengið hafa lyfið afhent eru hvattir til að skila pakkningunni í næsta apótek.
Sjá nánar í frétt á vef Lyfjastofnunar.
29. júní 2022
Óskráða lyfið Alimemazine Orifarm 40 mg/ml er nú ófáanlegt hjá heildsölu.
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Annað óskráð lyf hefur verið útvegað og er fáanlegt hjá heildsölu:
- Theralene 40 mg/ml dropar (vnr. 989816)
Lyfið er í frönskum pakkningum.
Lyfjastofnun vill vekja athygli á því að um tvö mismunandi óskráð lyf var að ræða og mælisprauturnar sem fylgja lyfjunum eru ólíkar.