Lyfjastofnun tekur að sér að vera umsjónarland (Reference Member State) í svokölluðum DC-ferlum. Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn.
Hægt er að sækja um pláss frá og með þriðja ársfjórðungi 2026. Losni pláss fyrr verður upplýsingum um það miðlað á vefsíðu Lyfjastofnunar. Einnig þarf að sækja um pláss fyrir umsókn um landsmarkaðsleyfi.
Vinsamlegast fyllið út eyðublaðið og sendið með tölvupósti til [email protected].