Tilkynningar í nóvember voru heldur færri en síðustu tvo mánuði þar á undan, en þó yfir meðaltali þessa árs. Að jafnaði hafa borist ellefu tilkynningar um aukaverkanir lyfja á mánuði þetta árið, en á síðasta ári voru þær mun fleiri eða 19.
Aukaverkanatilkynningar veita mikilvægar upplýsingar um öryggi lyfja þegar þau eru komin í almenna notkun. Því er rétt að hvetja almenning jafnt sem heilbrigðisstarfsfólk til að senda upplýsingar um slík tilvik til Lyfjastofnunar, og undirstrika að allir geta tilkynnt grun um aukaverkun lyfs. Hægt er að tilkynna rafrænt í gegnum gátt á vef Lyfjastofnunar.
Þá hefur Lyfjastofnun Evrópu hvatt sérstaklega til þess að aukaverkanir lyfja sem gefin hafa verið við COVID-19 sjúkdómnum verði tilkynntar, sem og aukaverkanir af lyfjanotkun vegna annarra sjúkdóma meðan á COVID-19 veikindum stendur.
Sex tilkynninganna í nóvember voru um alvarlega aukaverkun.
Sex þeirra tilkynninga sem bárust Lyfjastofnun í nóvember voru frá læknum, tvær frá lyfjafræðingum, en flestar eða sjö talsins frá notendum eða aðstandendum þeirra. Ein tilkynning barst úr klínískri rannsókn.