JA STOCKPILE – samstarfsverkefni Evrópuríkja til að efla viðbragð við heilsufarsógnum hafið 

Lyfjastofnun og sóttvarnalæknir taka þátt í samstarfi 25 landa 

Heimsfaraldur, stríð í heimsálfunni og loftslagsbreytingar hafa meðal annars varpað ljósi á nauðsyn þess að styrkja viðbúnað í öryggis- og heilbrigðismálum í Evrópu.

Í ljósi þess var JA STOCKPILE verkefninu hleypt af stað í september á þessu ári. Um er að ræða samstarfsverkefni á milli 54 stofnana og samstarfsaðila í 25 löndum sem Heilbrigðis- og velferðarstofnun Finnlands leiðir. Lyfjastofnun og sóttvarnarlæknir taka þátt í verkefninu. JA STOCKPILE hefur það sem markmið að hægt sé að bregðast hratt og örugglega við alvarlegum heilsufarsógnum sem geta haft áhrif í löndum innan Evrópu.

Verkefnið miðar einnig að því að efla samstarf milli þátttökuríkja í því skyni að fá betri yfirsýn yfir stöðu öryggisbirgða innan Evrópu og tryggja aðgengi og skilvirka dreifingu í neyðarástandi.

Verkefnið, sem er fjármagnað samkvæmt áætlun ESB á sviði heilbrigðismála, stendur til maí 2028 og var haldinn upphafsfundur í Helsinki 9.-10. september síðastliðinn þar sem þátttakendur frá 25 löndum hittust.

Fylgjast má með framgangi JA STOCKPILE á LinkedIn.

Síðast uppfært: 3. október 2025
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat