Nokkuð er síðan farið var að vekja athygli á að netkerfin 2G og 3G yrðu tekin úr notkun og nýrri kerfi tækju við. Nú í janúar var lokað fyrir 2G netkerfi á landsvísu og lokanir 3G netkerfa eru hafnar. Áætlað er að þeim verði lokið innan nokkurra mánaða. Þau tæki sem eingöngu notast við 2G og 3G geta því hætt að virka sem skyldi.
Lyfjastofnun vill vekja athygli á að þetta getur átt við um lækningatæki sem háð eru netsambandi og styðjast eingöngu 2G eða 3G netkerfi.
Hvert á að snúa sér ?
Notendur lækningatækja geta haft samband við seljanda tækisins eða framleiðanda þess til að nálgast upplýsingar um hvort tækið sé háð 2G eða 3G netkerfi. Ef sjúklingur er með lækningatæki til notkunar sem honum hefur verið úthlutað af heilbrigðisstofnun, er jafnframt hægt að hafa samband við viðkomandi heilbrigðisstofnun til að fá nánari upplýsingar og leiðbeiningar.
Nánari upplýsingar um lokun 2G og 3G netkerfanna má finna vef Fjarskiptastofu. Vefir fjarskiptafyrirtækjanna veita einnig upplýsingar um stöðu mála.
Öllum fyrirspurnum er varða þessar breytingar skal beina til fjarskiptafyrirtækjanna eða, eftir atvikum, Fjarskiptastofu.