Lyfjastofnun fór á Læknadaga 2026

Fulltrúar stofnunarinnar komu víða við og gátu tekið þátt í fjölbreyttum viðburðum

Starfsmenn Lyfjastofnunar tóku þátt í ýmsum viðburðum Læknadaga í janúar síðastliðnum.

Við áttum fulltrúa í pallborðsumræðum um heilbrigðisþjónustu án skaða - umhverfisáhrif í heilbrigðisþjónustu með áherslu á lyfin en Valgerður Guðrún Gunnarsdóttir, sviðsstjóri mats og skráningar lyfja tók þar sæti.

Bergrún Tinna Magnúsdóttir, tölfræðingur í klíníska teymi stofnunarinnar tók þátt í vinnustofunni “Hvernig býr maður til klínískan gagnagrunn? Frá framtíðarsýn til gagnadrifinna nýjunga”.

Einn af læknum Lyfjastofnunar, Sif Ormarsdóttir, hélt svo erindi um meltingartengdar aukaverkanir GLP-1 hliðstæða, á fundi um algeng vandamál á sviði meltingarlækninga með klínískri nálgun.

Á miðvikudagsmorgunn bauð Lyfjastofnun á morgunverðarfund þar sem Birna Kristín Eiríksdóttir og Agnes Engilráð Scheving kynntu fyrir hlustendum aukið aðgengi að klínískum lyfjarannsóknum með tilkomu nýrrar umsóknargáttar í Evrópu (CTIS) og þeim möguleikum sem hún býður upp á. Valdís Beck og Margrét Lilja Heiðarsdóttir fóru svo vel yfir þær nýjungar sem Lyfjastofnun hefur tekið upp tengdar lyfjaskorti í sérlyfjaskrá og ávísanakerfum lækna, í viðleitni til að auka upplýsingagjöf, auðvelda vinnu annarra og minnka álag á heilbrigðiskerfi og lyfjanotendur.

Síðast uppfært: 3. febrúar 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat