Mikið magn ólöglegra peptíða haldlögð hér á landi í alþjóðlegri aðgerð

Aðgerðirn kallaðist Operation SHIELD VI og stóð yfir frá apríl til nóvember 2025

Tollgæslan, með Lyfjastofnun til aðstoðar var meðal þátttakenda í alþjóðlegri aðgerð Europol sem beindist að viðskiptum og innflutningi á ólöglegum lyfjum.

Alls tóku 30 ríki þátt í aðgerðinni sem bar nafnið Operation SHIELD VI og stóð yfir frá apríl til nóvember 2025.

Á heimsvísu var hald lagt á lyf að andvirði rúmlega 33 milljónir evra, 3354 einstaklingar voru ákærðir og 43 skipulagðir glæpahópar rannsakaðir.

Hér á landi hefur verið lagt hald á rúmlega 5 þúsund glös af ólöglegum peptíðum sem tengjast m.a. þyngdarstjórnun, húð, hári og vöðvauppbyggingu. Í öllum tilfellum komu peptíðin frá Kína og voru send hingað til lands með póst- og hraðsendingum. Er þetta í fyrsta sinn sem tollgæslan hér á landi leggur hald á slík peptíð.

Seljendur eru með aðsetur í Kína og bjóða að jafnaði 40–50 mismunandi tegundir peptíða til sölu. Alls hafa 34 mismunandi tegundir verið haldlagðar á Íslandi, þar af margar sem aðeins hafa verið prófaðar á mönnum í takmörkuðum mæli og langtímaáhrif þeirra eru óþekkt.

Jafnframt var á síðasta ári lagt hald á tæplega 11 þúsund töflur og 3 lítra af svokölluðum SARMs efnum sem ætluð eru til vöðvauppbyggingar.

Tollgæslan og Lyfjastofnun nutu liðsinnis embættis ríkislögreglustjóra og tengslaskrifstofu Íslands hjá Europol við aðgerðina.

Áfram verður áherslumál hjá Tollinum að sporna gegn innflutningi ólöglegra lyfja og annarra skaðlegra efna til landsins í nánu samstarfi við innlendar og erlendar stofnanir, þar með talið Lyfjastofnun.

Síðast uppfært: 2. mars 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat