Athygli er vakin á því að lágmarksþjónusta verður veitt dagana 21. júlí - 4. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.
Opið verður á hefðbundnum tíma og öllum erindum verður svarað eins fljótt og auðið er, en tafir gætu orðið á tímabilinu sem um ræðir. Áríðandi verkefnum verður sinnt þessa daga þrátt fyrir lágmarksþjónustu að öðru leyti.
Nánar er sagt frá þeim verkefnum sem takmarkanir ná yfir í fyrri frétt Lyfjastofnunar um lágmarksþjónustutímann.