Starfsemi apóteka árið 2025

Fjölbreytta þjónustu er að finna í apótekum 

Í lok árs 2025 voru starfandi 74 apótek hér á landi, auk sjúkrahússapóteks Landspítala. Apótekum fækkaði  um eitt miðað við fjölda í lok árs 2024. Á landinu voru auk þess starfrækt 25 lyfjaútibú og 4 lyfsölur heilsugæslustöðva. 

Lyfjaútibú eru sölustaðir lyfja með takmarkaðri þjónustu en veitt er í lyfjabúðum. Lyfsölur kallast það rekstrarform sem er í tengslum við heilsugæslustöðvar til að tryggja lyfjadreifingu á svæðum þar sem langt er í næsta apótek eða lyfjaútibú. Önnur lyfsala utan apóteka er undanþága til sölu tiltekinna lausasölulyfja í almennri verslun. Í lok árs 2025 voru 15 rekstraraðilar sem höfðu gilda heimild til þess. 

Á Íslandi eru starfandi þrjár apótekskeðjur auk stakra rekstraraðila. Umfangsmest í rekstri lyfjabúða er Lyfja hf. sem rekur 24 apótek og 19 lyfjaútibú. Lyf og heilsa hf. er næst umfangsmest í rekstri apótek en Lyf og heilsa hf. rekur 23 apótek og 4 lyfjaútibú. Fjöldi apóteka Lyfjavals ehf. eru 7 og síðan starfrækja tæplega tuttugu rekstraraðilar eitt til tvö apótek hver. 

Skipting afgreiðslustaða lyfja á milli landshluta 

Langflestir afgreiðslustaðir lyfja eru á höfuðborgarsvæðinu, eða tæpur helmingur en þar voru 49 apótek starfandi og eitt sjúkrahúsapótek. Á Norðurlandi eystra voru 7 apótek og 6 útibú starfrækt sem jafngildir samanlagt 12% allra afgreiðslustaða, þar af voru 5 apótek á Akureyri. Fjöldi apóteka á Norðurlandi vestra var 1 og lyfjaútibúin 4. Á Suðurnesjum voru 5 apótek og 3 lyfjaútibú en á Suðurlandi voru 6 apótek, 4 útibú og 2 lyfsölur heilsugæslustöðva. Fjöldi apóteka á Austurlandi voru 2, lyfjaútibúin 4 og ein lyfsala heilsugæslustöðvar. Á Vesturlandi voru 4 apótek og 2 útibú en á Vestfjörðum var eitt apótek, 2 lyfjaútibú og ein lyfsala heilsugæslu. Listi yfir starfandi apótek hverju sinni er aðgengilegur á vef Lyfjastofnunar. 

Apótek af meðalstærð

Meðalafgreiðslutími apóteka á viku nam 53,5 stundum en 53,3 stundum þegar sjúkrahúsapótekið er tekið með í reikninginn. Meðalopnunartími apóteka um helgar var 7,2 klst. Fjögur apótek á höfuðborgarsvæðinu voru með opnunartíma yfir 100 stundir á viku og þar af eitt apótek með opið allan sólarhringinn alla daga vikunnar. 

Viðvera lyfjafræðinga á opnunartíma á virkum dögum nemur að meðaltali 1,97 lyfjafræðingi en viðvera lyfjatækna nemur að meðaltali 1,7 lyfjatækni. Að meðaltali eru 1,21 aðrir starfmenn að störfum á almennum afgreiðslutíma.

Starfsfólk megin afgreiðslustaða lyfja

Fjöldi starfsfólks í apótekum, lyfjaútibúum og lyfsölum var rétt ríflega níu hundruð sem er sambærilegur fjöldi og árið áður. Þar af voru 296 lyfjafræðingar og 54 lyfjatæknar. Fjöldinn segir ekki til um starfshlutfall. Hlutfall starfsfólks apóteka úr röðum lyfjafræðinga og lyfjatækna var sambærilegt við fyrra ár, en þó örlítið hærra eða 39%. 

Fjölbreytt starfsemi

Meðal þess sem starfsfólk margra apóteka starfar við er að þjónusta heilbrigðisstofnanir með öflun lyfja og eftirliti með notkun þeirra. Sinntu 17 apótek slíku eftirliti hjá 63 heilbrigðisstofnunum á árinu 2025. Hluti sjúklinga fær skömmtuð lyf og fá langflestir lyf í svokallaðri vélskömmtun en 5,3% fengu lyf sem hafði verið handskammtað. 18 apótek sinntu skipskistum og voru langflest þeirra, eða 78% staðsett á landsbyggðinni.

Lyfsala utan apóteka

Lögum samkvæmt er Lyfjastofnun heimilt að veita almennum verslunum heimild til sölu tiltekinna lausasölulyfja. Slíkar undanþágur má aðeins veita þar sem ekki er starfrækt apótek eða lyfjaútibú. Viðmiðið er að a.m.k. 20 kílómetrar séu í næsta apótek eða lyfjaútibú. Lyfsala í almennum verslunum takmarkast við lægsta styrkleika ákveðinna lausasölulyfja í minnstu fáanlegu pakkningastærð. Þar af leiðir að ekki er hægt að nálgast lyfseðilsskyld lyf í almennum verslunum. 

Fjöldi apóteka og afgreiðslustaða lyfja í samanburði við fólksfjölda

Megin afgreiðslustaðir lyfja (apótek, lyfjaútibú, lyfsölur, sjúkrahúsapótek) voru alls 105 í lok árs 2025, líkt og árið á undan. Fjöldi landsmanna á hvern þessara afgreiðslustaða var 3.755 í árslok 2025. Fjöldi landsmanna á hvert apótek var 5.258 og fjöldi landsmanna á hvert apótek á höfuðborgarsvæðinu var 5.141. 

Þegar teknar voru með í reikninginn almennar verslanir sem höfðu gild leyfi til sölu tiltekinna lausasölulyfja var um að ræða 120 staði. 

Heimildir 

  • Niðurstöður árlegra kannana um mönnun apóteka, framkvæmdar af Lyfjastofnun. Síðast í janúar-febrúar 2026. 
  • Fólksfjöldatölur frá Hagstofu Íslands. Hlutfallstölur fyrir fyrri ár kunna að vera frábrugðnar því sem áður hefur verið gefið út vegna breytingar á aðferðafræði Hagstofunnar við útreikning á mannfjölda. 
Síðast uppfært: 13. mars 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat