Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágulyfjaverðskrá verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.
Listinn hér að neðan sýnir þau 25 lyf í undanþágulyfjaverðskrá sem læknar ávísuðu oftast í ágúst 2021 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í undanþágulyfjaverðskrá.
| Lyfjaheiti | Lyfjaform | Virkt innihaldsefni | Norrænt vnr. | Fj. áv. |
| Doloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / flúókortólón | 980286 | 368 |
| Doloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / flúókortólón | 982331 | 224 |
| Xyloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / hýdrókortisón | 980369 | 193 |
| Xyloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / hýdrókortisón | 980377 | 122 |
| Senokot | Töflur | senna | 980533, 980541 | 162 |
| Quinine sulfate | Töflur | kínín | 975592 | 100 |
| Trimipramin neuraxpharm | Töflur | trímipramín | 979693 | 93 |
| SEM mixtúra | Mixtúra | kódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt | 962234, 962242 | 107 |
| Morfin "DAK" | Töflur | morfín | 969181, 969777 | 115 |
| Alimemazine orifarm | Dropar | alímemazín | 982787 | 69 |
| Glycerol infant | Endaþarmsstílar | glýceról | 944852 | 63 |
| Miralax | Lausnarduft | pólýetýlen glýkol | 958829 | 61 |
| Bromam (6 mg) | Töflur | brómazepam | 984626 | 61 |
| Levo-mepromazine orion (25 mg) | Töflur | levómeprómazín | 981995 | 55 |
| Rohypnol | Filmuhúðaðar töflur | flúnítrazepam | 980591 | 53 |
| Levo-mepromazine orion (5 mg) | Töflur | levómeprómazín | 980955 | 52 |
| Condyline | Húðlausn | pódófýllótoxín | 975831 | 51 |
| Nozinan | Töflur | levómeprómazín | 979867 | 51 |
| Mogadon | Töflur | nítrazepam | 981169 | 40 |
| Methoprazine | Töflur | levómeprómazín | 981193 | 37 |
| Emgesan | Töflur | magnesíum hýdróxíð | 975435 | 36 |
| Bromam (3 mg) | Töflur | brómazepam | 407668 | 35 |
| Oxybutinin | Töflur | oxýbútínín | 983412 | 33 |
| Periactin | Töflur | cýpróheptadín | 964115 | 27 |
| Rinexin | Forðatöflur | fenýlprópanólamín | 982795 | 24 |