Eitt af hlutverkum Lyfjastofnunar er að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á öryggi sjúklinga. Lyfjastofnun hefur því unnið að því að fjölga skráðum lyfjum, þ.e. lyfjum sem hafa íslenskt markaðsleyfi og eru markaðssett hér á landi.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á, að lyf sem eru í mikilli og samfelldri notkun í undanþágukerfinu verði skráð. Ljóst er að veruleg tækifæri felast í skráningu umræddra lyfja og hvetur Lyfjastofnun markaðsleyfishafa og umboðsaðila til að gaumgæfa málið.
Listinn hér að neðan sýnir þau lyf í undanþágukerfinu sem læknar ávísuðu oftast í október árið 2022 og þá ekki vegna tímabundins skorts skráðra lyfja. Í listanum eru upplýsingar um heiti, lyfjaform, virkt efni, fjölda ávísana og vörunúmer lyfjanna í lyfjaverðskrá.
| Lyfjaheiti | Lyfjaform | Virkt innihaldsefni | Norrænt vnr. | Fj. áv. | 
| Doloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / flúókortólón | 980286 | 509 | 
| Doloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / flúókortólón | 982331 | 414 | 
| Utrogest | Hylki | prógesterón | 987498 | 250 | 
| Sem mixtúra | Mixtúra | kódein, dífenhýdramín, ammóníumklóríð og lakkrísextrakt | 962234, 962242 | 190 | 
| Xyloproct | Endaþarmsstílar | lídókaín / hýdrókortisón | 980369 | 181 | 
| Xyloproct | Endaþarmskrem | lídókaín / hýdrókortisón | 980377 | 148 | 
| Senokot | Töflur | senna | 980533, 980541 | 125 | 
| Quinine sulfate | Töflur | kínín | 975592 | 115 | 
| Digoxin | Töflur | Digoxín | 990368 | 107 | 
| Glycerol infant | Endaþarmsstílar | glýceról | 944852 | 79 | 
| Betapret | lausnartöflur | Betametasón | 7997 | 68 | 
| Miralax | Lausnarduft | pólýetýlen glýkol | 958829 | 64 | 
| Condyline | Húðlausn | pódófýllótoxín | 975831 | 53 | 
| Emgesan | Töflur | Magnesíum hýdroxíð | 975435 | 53 | 
| Rohypnol | Filmhúðaðar töflur | Flúnítrazepam | 980591 | 53 | 
| Halcion | Töflur | tríazólam | 988347 | 52 | 
| Bromam | Töflur | brómazepam | 984626 | 50 | 
| Trimipramin neuraxpharm | Töflur | trímipramín | 979693 | 50 | 
| Alimemazine orifarm | Dropar | Alímemazín | 982787 | 49 | 
| Finacea | Hlaup | Azelainsýra | 980393 | 47 | 
| Alimemazin evolan | Dropar | Alímemazín | 990285 | 46 | 
| Skinoren | Krem | Azelainsýra | 980385 | 43 | 
| Rinexin | Forðatöflur | fenýlprópanólamín | 982795 | 39 | 
| Oxybutinin | Töflur | Oxýbútýnín | 983412 | 38 | 
| Utrogest | Hylki | prógesterón | 987498 | 38 | 
| Morfin "Dak" | Töflur | morfín | 969181 | 37 | 
| Periactin | Töflur | cýpróheptadín | 964115 | 37 | 
| Mogadon | Töflur | Nítrazepam | 981169 | 35 | 
| Nozinan | Töflur | levómeprómazín | 979867 | 33 | 
| Levomepromazine orion | Töflur | levómeprómazín | 980955 | 32 |