Lyfjastofnun efndi til fundar með hagsmunaaðilum þann 25. september sl. Yfirskrift fundarins var Samstarf gegn áhrifum lyfjaskorts og var boðað til hans til að kynna nýjungar í miðlun upplýsinga um lyfjaskort, skýra verkferla hjá Lyfjastofnun, og skerpa á línum um hlutverk allra aðila. Markmiðið með þessum bættu upplýsingum og breyttu verklagi er að draga úr áhrifum lyfjaskorts á lyfjanotendur og létta álagi af heilbrigðiskerfinu. Um 40 manns mættu á fundinn, fulltrúar frá heildsölum, markaðsleyfishöfum, Landspítala, Sjúkratryggingum, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og hagsmunasamtökum.
Nýjungar í upplýsingamiðlun um lyfjaskort
Starfsfólk Lyfjastofnunar kynnti nýjungar í upplýsingamiðlun um lyfjaskort, en ítarlegri upplýsingar um skort eru nú birtar í sérlyfjaskrá (serlyfjaskra.is / lyf.is) en áður var. Þar með er búið að sameina allar upplýsingar sem Lyfjastofnun birtir um lyfjaskort á einum stað. Nú er hægt að nálgast þar lista yfir lyf í skorti, lista yfir heimildir til útskipta og betri ráðleggingar á hverju lyfjaspjaldi, en þegar hefur verið fjallað um þessar uppfærslur á vefnum.
Allar þessar upplýsingar birtast einnig í þeim ávísanakerfum lækna sem lesa skortsupplýsingar, til dæmis í Sögukerfi og á miðlægu lyfjakorti. Auk þess birtast eftir sem áður í slíkum kerfum leiðbeiningar til lækna um hvort hægt sé að ávísa lyfi í skorti og málið verði leyst í apóteki, eða hvort ávísa þurfi öðru lyfi vegna skorts.
Breytingunum er ætlað að stytta leiðir að upplýsingum, einfalda undanþáguferlið og þar með létta af álagi, bæði hjá þeim sem ávísar og þeim sem þarfnast lyfsins.
Á fundinum var einnig kynnt ný leið til þess að tilkynna lyfjaskort til Lyfjastofnunar, þ.e. tilkynningar í gegnum vefþjónustu. Nýja kerfið er í prufufasa og er afrakstur af samstarfi Lyfjastofnunar og hagsmunaaðila. Vonir eru bundnar við að þessi nýjung verði skilvirkari, auki líkur á að skortur verði tilkynntur og þá með meiri fyrirvara en oft hefur verið raunin enda er fyrirvari lykillinn að því að hægt sé að draga úr áhrifum lyfjaskorts.
Fundurinn þótti takast vel
Fulltrúar Lyfajstofnunar voru afar ánægðir með fundinn og samtalið og var á fundargestum að heyra að almenn ánægja með væri með hann meðal þeirra og einnig með þær lausnir sem Lyfjastofnun hefði unnið að til að bæta skilvirkni í málflokknum að undanförnu. Sömuleiðis að gott hefði verið að eiga samtal við starfsfólk stofnunarinnar, og miðla reynslu og hugmyndum.



