Uppfærsla á kerfum Lyfjastofnunar fer fram þriðjudaginn 3. mars

Uppfærslan hefst kl 15:00 og mun ekki hafa teljandi áhrif á almenning. Sérlyfjaskrá verður aðgengileg allan tímann

Innri kerfi Lyfjastofnunar verða uppfærð þriðjudaginn 3. mars nk. Uppfærslan hefst kl 15:00 og stendur fram eftir degi.

Ekki er gert ráð fyrir að þessi uppfærsla hafi áhrif á almenning og verður Sérlyfjaskrá/lyf.is aðgengileg eins og vanalega.

Hvað verður fyrir áhrifum? 

Eftirfarandi þjónustur verða ekki aðgengilegar frá því kl 15:00 og út daginn. Þær koma svo aftur inn með kvöldinu og ættu allar að vera virkar að morgni miðvikudags:

  • Eyðublöð sem aðgengileg eru í gegnum mínar síður (eldri) og krefjast auðkenningar á island.is:
    • Tilkynning um lyfjaskort
    • Umsókn fyrir lyf án markaðsleyfis
    • Umsókn vegna innflutning ávana- og fíknilyfja
    • Umsókn vegna útflutnings ávana- og fíknilyfja
  • Eyðublöð í þjónustugáttinni sem ekki krefjast auðkenningar:
    • 0 daga eyðublað
    • CPP vottorð (type A)
  • Tilkynningar lyfjaskorts í gegnum POST endapunkt Sérlyfjaskrár vefþjónustunnar

Mikill meirihluta þeirra eyðublaða sem notast er við eru nú hýst á island.is og verða ekki fyrir áhrifum af þessari uppfærslu.

Ekki er gert ráð fyrir því að þessar uppfærslur hafi áhrif á starfsemina að öðru leyti.

Síðast uppfært: 27. febrúar 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat