Yfirfærslu á vef Lyfjastofnunar yfir á island.is er að mestu lokið. Frá og með 1. nóvember nk. verður vefurinn lyfjastofnun.is ekki uppfærður lengur. Reiknað er með að hann verði opinn til áramóta en bent er á að nýjustu upplýsingar er að finna á nýju vefsvæði okkar.
Ekki er þörf á að uppfæra áskrift að vikulegu fréttabréfi því fréttir munu skila sér frá vefsvæðinu á island.is á sama hátt og hingað til.
Við kveðjum þennan vef, sem við erum stolt af og hefur þjónað okkur vel, og færum okkur inn í framtíð Stafræns Íslands með öðrum stofnunum.
Frá því að vefurinn lyfjastofnun.is var opnaður 30. október 2020 hafa 1.256 fréttir verið birtar þar. Sá mánuður sem stendur upp úr hvað fjölda frétta varðar er júní 2021 en þá voru 40 fréttir birtar á lyfjastofnun.is, enda má segja að heimsfaraldur COVID-19 hafi þá verið í hámarki. Sú frétt sem hins vegar mesta athygli hefur vakið snerist um greiðsluþátttöku í þyngdarstjórnunarlyfjunum Saxenda og Wegovy. Sú frétt frá 2023 var skoðuð 24.082 sinnum.
Fjöldi áskrifenda að fréttaveitunni okkar, sem fá sendan tölvupóst með yfirliti yfir fréttir í hverri viku hefur farið stigvaxandi frá því vefurinn var opnaður, en síðastliðin 2 ár hefur sá fjöldi verið í kringum 620-630 í hverjum mánuði. Hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi Lyfjastofnunar með því að skrá sig á póstlistann.
Takk fyrir samfylgdina hér og sjáumst á island.is.