Parkódín 500 mg/10 mg og Parkódín Forte 500 mg/30 mg

24. mars 2026

Undanþágulyfið Co-codamol 500 mg/8 mg 100 stk. er nú fáanlegt hjá heildsölunni Parlogis. Vegna skorts hjá heildsala í Bretlandi var ekki hægt að útvega Co-codamol 500 mg/8 mg í 32 stk. pakkningum.

18. mars 2026

Tvær pakkningastærðir af Parkódín eru komnar í skort 30 og 100 stykki, einnig eru líkur til þess að Parkódín Forte 100 stykki fari í skort á næstu dögum. Upplýsingar um skortinn bárust Lyfjastofnun í lok febrúar, núverandi upplýsingar frá umboðsaðila lyfjanna Teva Pharma Iceland ehf eru að skorti muni ljúka í byrjun maí. Lyfjaskorturinn er tilkominn vegna skorts á virku hráefni til framleiðslunnar.

Fyrir nánari upplýsingar um framboð lyfsins er vísað til umboðsaðila, Teva Pharma Iceland ehf.

Upplýsingar um lyfjaskortinn má finna inni á sérlyfjaskrá, lyf.is, með því að fletta upp lyfjunum og opna lyfjaskortsspjaldið, sjá mynd hér fyrir neðan. Lyfjastofnun mun uppfæra upplýsingar um skortinn á lyf.is um leið og þær berast frá Teva.

Sömu upplýsingar og er að finna á lyfjaskortsspjaldinu er að finna í ávísanakerfum lækna sem lesa skortsupplýsingar frá Lyfjastofnun, þ.e. Sögukerfið og miðlæga lyfjakortið.

Aðgerðir til þess að draga úr áhrifum skortsins

Önnur verkjalyf og keðjuverkandi áhrif

Lyfjastofnun hefur sent úr erindi til annarra lyfjafyrirtækja, með ýmis verkjalyf sem gætu komið í stað Parkódín og Parkodín Forte, til þess að benda á mögulega söluaukningu.
Parkódín, 500 mg paracetamol og 10 mg kódein, er ekki á markaði á Norðurlöndunum og því er ekki hægt að útvega lyf frá öðrum Norðurlöndum.

Vélskömmtunarpakkningar

Á markaði eru 200 stk vélskömmtunarpakkningar af Parkódín 500 mg/10 mg, Lyfjastofnun óskar eftir því að heilbrigðisstofnanir og aðrir sem hafa heimild til þess að kaupa þá pakkningu noti hana eftir sem áður, til þess að draga úr áhrifum skortsins.

Bæklingur um ópíóða

Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu hefur gefið út bækling um ópíóða, þar má finna ýmis góð ráð og leiðbeiningar, t.d. hvernig má draga úr krónískum verkjum án ópíoíða.

Ráð til lyfjafræðinga í apótekum

Undanþágulyf og heimild til útskipta

Heildsalan Parlogis er að vinna í því að útvega undanþágulyfið Co-codamol, sem inniheldur 500 mg af paracetamóli og 8 mg af kódeini. Undanþágulyfið kemur frá Bretlandi. Um tvær pakkningastærðir er að ræða 32 töflur (vnr 982487) og 100 töflur (vnr 973947). Lyfjastofnun getur ekki veitt lyfjafræðingum heimild til útskipta þar sem um er að ræða annað lyf og annan styrkleika. Undanþágulyfið mun birtast í lyfjaverðskrá 1. apríl og í ávísanakerfum lækna sem uppfæra kerfin mánaðarlega með nýjustu lyfjaverðskránni.

Rjúfa pakkningu

Til að tryggja að birgðir af undanþágulyfinu nýtist sem best er bent á að nýta heimild til að rjúfa pakkningu af undanþágulyfinu ef ávísað er minna magni en pakkningastærð undanþágulyfs segir til um.

Neyðarafhendingarréttur

Lyfjafræðingum er heimilt í undantekningartilvikum að afhenda lyfseðilsskylt lyf án lyfseðils þegar ekki næst í lækni, enda fullvissi lyfjafræðingur sig um réttmæti afhendingarinnar og skrái hana samkvæmt reglum, sbr. 15. grein reglugerðar um Reglugerð um afgreiðslu lyfseðla, áritun og afhendingu, nr 422 frá árinu 2027. Þessi heimild á einnig við um undanþágulyf og ávana- og fíknilyf.

Ráð til lækna

Ávísa einungis því magni sem þörf er á

Lyfjafræðingar hafa heimild til að rjúfa pakkningu og því er bent á þann möguleika að ávísa minna magni en pakkning segir til um.

Undanþágulyf

Heildsalan Parlogis er að vinna í því að útvega undanþágulyfið Co-codamol, sem inniheldur 500 mg af paracetamóli og 8 mg af kódeini. Undanþágulyfið kemur frá Bretlandi. Um tvær pakkningastærðir er að ræða 32 töflur og 100 töflur. Gert er ráð fyrir að það verði tilbúið í sölu eftir tvær til þrjár vikur. Undanþágulyfið mun birtast í lyfjaverðskrá 1. apríl og ávísanakerfum lækna sem uppfæra ávísanakerfin mánaðarlega með nýjustu lyfjaverðskránni.

Paracetamol eða Parkódín Forte

Ef læknar meta að ekki sé fullnægjandi áhrif af paracetamol einu og sér í stað þess að ávísa Parkódín 500 mg/10 mg gæti komið til greina að ávísa hálfri Parkódín forte 530 mg á meðan þær eru enn til.  Parkódín Forte töflurnar eru með deilistriki. Vegna þess að líkur eru á að 100 stykkja pakkning af Parkódín Forte fari í skort á næstu dögum væri ráðlagt að fara eins sparlegameð það lyf eins og hægt er.

Síðast uppfært: 24. mars 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat