Aukaverkanatilkynningar að jafnaði færri í ár en 2019

Tilkynningar um aukaverkanir lyfja það sem af er ári, eru mun færri í hverjum mánuði að jafnaði en var að meðaltali árið 2019. Meðaltal ársins 2019 var 19 tilkynningar á mánuði, meðaltal fyrstu átta mánaða þessa árs er 8,25.

Tilkynningar um aukaverkanir í ágúst sl. eru undir meðaltali ársins, eða sex talsins. Tvær tilkynninganna voru um alvarlega aukaverkun.

Aukaverk-agust-2020-alvarl

Fjórar af þeim sex aukaverkanatilkynningum sem bárust Lyfjastofnun í ágúst voru frá læknum, ein frá einstaklingi úr annarri heilbrigðisstétt og ein frá notanda.

Aukaverk-agust-2020-tilkynnandi

Tilkynningar um aukaverkanir skipta miklu máli og veita mikilvægar upplýsingar um öryggi lyfja þegar þau eru komin í almenna notkun. Þá má minna á að Lyfjastofnun Evrópu hefur hvatt sérstaklega til þess að aukaverkanir lyfja sem gefin hafa verið við COVID-19 verði tilkynntar, sem og aukaverkanir af lyfjanotkun vegna annarra sjúkdóma meðan á Covid-veikindum stendur.

Allir geta tilkynnt um aukaverkun lyfs, almenningur jafnt sem heilbrigðisstarfsmenn. Hægt er að tilkynna rafrænt um aukaverkun í gegnum gátt á vef Lyfjastofnunar.

Síðast uppfært: 17. nóvember 2020
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat