Tilkynntum aukaverkunum í júlí fækkaði nokkuð frá síðasta mánuði

Tilkynntar aukaverkanir lyfja voru átta talsins í júlímánuði, þar af var ein aukaverkun alvarleg. Tilkynningum fækkaði því nokkuð milli mánaða, þær voru tólf í júnímánuði. Tilkynningar júlímánaðar eru þó nálægt meðaltalsfjölda fyrri mánaða ársins. Tilkynningar í júlí bárust nokkuð jafnt frá notendum lyfja og heilbrigðisstarfsfólki.

Aukaverk.-juli-2020-alvarleiki

Tilkynningar um aukaverkanir skipta miklu máli og veita mikilvægar upplýsingar um öryggi og ávinning lyfja þegar þau eru komin í almenna notkun. Þá má minna á að Lyfjastofnun Evrópu hefur hvatt sérstaklega til þess að aukaverkanir lyfja sem gefin hafa verið við COVID-19 verði tilkynntar, sem og aukaverkanir af lyfjanotkun vegna annarra sjúkdóma meðan á Covid-veikindum stendur.

Allir geta tilkynnt um aukaverkun lyfs, almenningur jafnt sem heilbrigðisstarfsmenn. Hægt er að tilkynna rafrænt um aukaverkun í gegnum gátt á vef Lyfjastofnunar.

Aukaverk.-juli-2020-tilkynnendur

Síðast uppfært: 17. nóvember 2020
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat