Árleg inflúensubólusetning – upplýsingar fyrir almenning

Notast verður við bóluefnið Vaxigrip og verða 90.000 skammtar tilbúnir til dreifingar þann 9. október nk.

Bólusetning gegn árlegri inflúensu mun hefjast á hefðbundnum tíma hérlendis en búist er við að bólusetning forgangshópa geti hafist um allt land í byrjun október. Þetta kemur fram í tilkynningu landlæknisembættisins.

Allar ákvarðanir um framkvæmd og fyrirkomulag bólusetninga er í höndum sóttvarnalæknis sem hefur mælst til að ákveðnir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningu:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn fædd 1.1.2021 - 30.6.2025, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Barnshafandi konur.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Fólk í starfstengdri áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu

Upplýsingar um bóluefnið sem bólusett verður með

Veturinn 2025-2026 verður notast við Vaxigrip til bólusetningar gegn árlegri inflúensu skv. ákvörðun sóttvarnalæknis. Sóttvarnalæknir hefur gert samning við Vistor um kaup á 90.000 skömmtum fyrir veturinn. Vaxigrip er eitt af þremur inflúensubóluefnum sem eru á markaði á Íslandi, hin eru Influvactetra og VaxigripTetra.

Veirustofnar í Vaxigrip

  • A/Victoria/4897/2022 (H1N1) pdm09 - líkur stofn
  • A/Darwin/9/2021 (H3N2) - líkur stofn
  • B/Austria/1359417/2021 - líkur stofn
Fullt heitiVaxigrip 15 míkróg 
Stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu  
ATC flokkurJ07BB02 
InnihaldsefniInflúensuveira (deydd, klofin) 
LyfjaformStungulyf, dreifa í áfylltri sprautu 
ÍkomuleiðTil notkunar í vöðva
AldurshópurFrá 6 mánaða aldri 

Bóluefnið er ræktað í frjóvguðum hænueggjum úr heilbrigðum hænsnahópum

Skammtar bóluefnisins

Vaxigrip

FullorðnirEinn 0,5 ml skammtur
Börn 6 mánaða til 17 ára að aldriEinn 0,5 ml skammtur
Börn yngri en 9 ára að aldri,
sem ekki hafa verið bólusett áður
Gefa annan 0,5 ml skammt eftir 4 vikur

Nánari upplýsingar um Vaxigrip fyrir bólusetta er að finna í fylgiseðli og upplýsingar fyrir heilbrigðisstarfsfólk er að finna í samantekt á eiginleikum lyfsins.

Síðast uppfært: 8. október 2025
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat