Aukaverkanatilkynningar í mars álíka margar og fyrstu tvo mánuði ársins

Fjöldi tilkynninga á mánuði er enn á við það sem áður fyrr barst á heilu ári.

Tilkynningar um aukaverkanir lyfja sem bárust Lyfjastofnun í mars sl. voru 237 talsins, nokkuð fleiri en í febrúar, en álíka margar og í janúar. Tilkynningar hvers mánaðar á þessu ári eru þó fleiri en áður bárust að jafnaði á heilu ári. Flestar tilkynninganna í mars voru tengdar bóluefnum gegn COVID-19 eða um 94%.

Eins og áður hefur verið nefnt er einkum tvennt sem gæti skýrt mikla fjölgun tilkynninga frá því sem áður var. Þar má nefna tilkynningaskyldu heilbrigðisstarfsfólks en hún kom til með nýjum lyfjalögum sem tóku gildi í ársbyrjun. Aukin umræða og vitund almennings um mikilvægi aukaverkanatilkynninga á tímum heimsfaraldurs gæti einnig skýrt þetta að einhverju leyti. Miðlun upplýsinga um bóluefni gegn COVID-19 og hugsanlegar aukaverkanir af þeim hefur enda víða verið áberandi. Á vef Lyfjastofnunar er þannig að finna sérstaka síðu þar sem fjallað er um aukaverkanir sem gætu fylgt COVID-19 bóluefnum. Á annarri síðu eru uppfærðar daglega upplýsingar um fjölda aukaverkanatilkynninga sem borist hafa Lyfjastofnun vegna bóluefnanna, og áhersla lögð á að í þeim er tilkynnt um grun um aukaverkanir, ekki er um staðfest tilvik að ræða.

Heildarfjöldi tilkynninga í mars var 237. Af þessum tilkynningum tengdust 222 bóluefnum gegn COVID-19; 36 vegna Comirnaty (BioNTech/Pfizer), 23 vegna bóluefnis Moderna, og 163 vegna Vaxzevria frá AstraZeneca. Fimmtán tilkynninganna tengdust öðrum lyfjum.  

Fjöldi tilkynninga eftir alvarleika

Tuttugu og níu af tilkynningum marsmánaðar voru vegna gruns um alvarlega aukaverkun. Tuttugu og tvær þeirra tengdust bóluefnum; tíu vegna bóluefnis Pfizer, tíu vegna AstraZeneca, og tvær vegna Moderna. Hinar sjö tengdust öðrum lyfjum.

Fjöldi tilkynninga eftir tilkynnendum

Fimmtíu og fjórar tilkynninganna voru frá læknum, og níutíu og ein frá öðrum heilbrigðisstarfsmönnum. Lyfjafræðingar sendu inn níu tilkynningar um aukaverkanir, og sjötíu og sjö bárust frá notendum eða aðstandendum þeirra. Ein tilkynning barst frá dýralækni um hugsanlega aukaverkun af dýralyfi.

Mikilvægt að tilkynna um aukaverkun lyfs

Enn skal áréttað að aukaverkanatilkynningar veita mikilvægar upplýsingar um öryggi lyfja þegar þau eru komin í almenna notkun. Því er rétt að hvetja almenning jafnt sem heilbrigðisstarfsfólk til að senda upplýsingar um slík tilvik til Lyfjastofnunar, allir geta tilkynnt grun um aukaverkun lyfs. Hægt er að tilkynna rafrænt í gegnum gátt á vef Lyfjastofnunar. Í því sambandi má líka minna á að Lyfjastofnun Evrópu hefur hvatt sérstaklega til þess að aukaverkanir lyfja sem gefin hafa verið við COVID-19 sjúkdómnum, þar á meðal vegna bóluefna gegn COVID-19, verði tilkynntar, sem og aukaverkanir af lyfjanotkun vegna annarra sjúkdóma meðan á COVID-19 veikindum stendur.

Síðast uppfært: 27. apríl 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat