Lyfjastofnun birtir nú í fyrsta skiptið samantekt á stöðu lyfjaskorts þar sem lögð er áhersla á að kjarna stöðu lyfjaskorts og þau áhrif sem skorturinn getur haft á lyfjanotendur og heilbrigðiskerfið.
Lyfjafyrirtækjum ber skylda til að tilkynna um lyfjaskort til lyfjastofnunar. Mikilvægt er að tilkynningar um fyrirsjáanlegan lyfjaskort berist með góðum fyrirvara til Lyfjastofnunar. Þegar ljóst er að lyf mun fara í skort er mikilvægt að nýta fyrirvarann til að bregðast við og draga úr áhrifum lyfjaskorts á lyfjanotendur og heilbrigðiskerfið. Samstarf lyfjafyrirtækja, Lyfjastofnunar og starfsmanna heilbrigðiskerfisins, gott upplýsingaflæði og nægur fyrirvari er lykillinn að því að hægt sé að leita lausna. Þannig má ýmist koma í veg fyrir lyfjaskort eða minnka þau áhrif sem hann getur haft á lyfjanotendur.
Lyfjastofnun vinnur markvisst að því að koma í veg fyrir lyfjaskort og milda þau áhrif sem skortur hefur á lyfjanotendur og heilbrigðiskerfið með margvíslegum aðgerðum.
Hvað er lyfjaskortur? Þegar lyf sem lyfjafyrirtæki (markaðsleyfishafi eða umboðsaðili þess hér á landi) hefur ákveðið að bjóða til sölu á Íslandsmarkaði er ófáanlegt.
Skipta má lyfjaskorti í tvennt eftir því hversu líklegur hann er að hafa áhrif á lyfjanotendur:
- Lyfjaskortur sem er ólíklegur til að hafa áhrif á lyfjanotendur, til dæmis:
- skortur í stuttan tíma og lyfið er þá fáanlegt í einhverjum apótekum,
- önnur pakkningastærð er fáanleg,
- annar styrkleiki er til og lyfjafræðingur aðlagar skömmtunarleiðbeiningar,
- sama lyf frá öðrum framleiðanda er fáanlegt,
- lyfjafræðingur getur skipt yfir í undanþágulyf samkvæmt heimild Lyfjastofnunar.
Í þessum tilfellum getur læknir ávísað lyfi sem er í skorti og málið er leyst í apóteki.
- Lyfjaskortur sem gæti haft áhrif á lyfjanotendur. Í þessum tilfellum þarf læknir að breyta lyfjameðferð í álíka lyfjameðferð (ekki hægt að leysa í apóteki) eða engin lyfjameðferð er fáanleg.
Til þess að fá upplýsingar um hvaða lyf er í skorti og ráðleggingar Lyfjastofnunar við skortinum er farið inn á sérlyfjaskra.is. Þegar ákveðnu lyfi er flett upp birtist bleikur kassi með textanum Lyfjaskortur, þegar smelt er á hann opnast ítarlegri upplýsingar um skortinn. Dæmi