Bréf til heilbrigðisstarfsmanna (DHPC) – lyf sem innihalda flúórókínólóna

Markaðsleyfishafar lyfja sem innihalda flúórókínólóna til altækrar notkunar og innöndunar, hafa í samráði við Lyfjastofnun Evrópu og Lyfjastofnun, sent bréf til heilbrigðisstarfsmanna til að koma á framfæri nýrri viðvörun um hættu á ósæðargúlpi og ósæðarrofi.

  • Lyfjafaraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt fram á að flúórókínólónar, altækir og til innöndunar geta aukið hættu á ósæðargúlpi og ósæðarrofi, einkum hjá eldra fólki.

  • Hjá sjúklingum sem eru í hættu á að fá ósæðargúlp og ósæðarrof skal einungis nota flúórókínólóna eftir vandlegt mat á áhættu og ávinningi og eftir að önnur meðferðarúrræði hafa verið íhuguð.

  • Sjúkdómar sem geta aukið líkur á ósæðargúlpi og ósæðarrofi eru meðal annars fjölskyldusaga um slagæðargúlp, áður greindur ósæðargúlpur eða ósæðarrof, Marfan-heilkenni, æðaafbrigði Ehlers-Danlos-heilkennis, Takayasu-slagæðabólga, risafrumuslagæðabólga, Behçet-sjúkdómur, háþrýstingur og æðakölkun.

  • Fræða skal sjúklinga um hættu á ósæðargúlpi og ósæðarrofi, og þeim ráðlagt að leita strax læknis ef fram kemur skyndilegur og mikill verkur í kvið, brjóstkassa eða baki.

Nánari upplýsingar er að finna í bréfinu, og að auki má finna ítarlegar upplýsingar um lyf sem innihalda flúórókínólóna í sérlyfjaskrá.

Yfirlit yfir bréf til heilbrigðisstarfsmanna.

Síðast uppfært: 25. október 2018
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat