Á faraldsfæti um verslunarmannahelgina?

Það er að ýmsu að huga áður en haldið er af stað í ferðalag. Vissir þú að sniðganga á áfengisneyslu þegar ákveðin lyf eru notuð eða að sum lyf geta valdið viðbrögðum í húðinni ef hún verður fyrir sólarljósi?

Hérna eru okkar bestu ráð fyrir lyfjanotendur á ferð og flugi

Mundu að hafa lyfin meðferðis

Þetta er gott að hafa meðferðis á ferðalaginu

  • Lyfin þín og annarra fjölskyldumeðlima í nægilegu magni fyrir þann tíma sem fríið varir
  • Plástur og hælsærisplástur
  • Verkjastillandi og hitalækkandi lyf
  • Ferðaveikilyf. Fyrir þá sem þjást af bíl- eða sjóveiki getur reynst nauðsynlegt að hafa með sér ferðaveikilyf. Sér í lagi ef farið er í siglingu eða lengri bílferðir.
  • Lækningatæki sem þörf er á til persónulegra nota, svo sem nálar fyrir stungulyf, blóðsykurmæli og innöndunartæki fyrir astmalyf.
  • Plástur og hælsærisplástur. Eins gaman og það er að fá sér nýja skó er fátt óþægilegra en hælsæri. Takið með hælsærisplástur svo hægt sé að endast lengur á göngu.
  • Kælikrem og staðdeyfandi krem koma að góðum notum þegar þörf er á að draga úr kláða og öðrum slíkum óþægindum sem geta fylgt skordýrabitum, stungum og sólbruna.

Áfengisneysla samhliða notkun lyfja

Hefurðu velt því fyrir þér hvort þú megir fá þér vínglas á sama tíma og lyfjameðferð stendur?

Almennt ætti að fara varlega í notkun áfengis þegar lyf eru tekin. Þetta á jafnt við um lyf sem tekin eru að staðaldri og lyf sem tekin eru tímabundið s.s. verkjastillandi og bólgueyðandi lausasölulyf. Viðbrögð fólks geta verið mismunandi og áfengisneysla getur verið hættuleg samhiða notkun ákveðinna lyfja.

Góð regla er að lesa alltaf fylgiseðil lyfsins, þar kemur meðal annars fram hvort þörf er á að sniðganga áfengi alfarið á meðan á lyfjatöku stendur. Fylgiseðillinn fylgir lyfinu og einnig má fletta honum upp á vefnum lyf.is.

Áfengisnotkun samhliða notkun lyfja gæti til dæmis:

  • Dregið úr eða aukið áhrif lyfsins. Notkun lyfja sem innihalda parasetamól samhliða áfengisneyslu getur haft skaðleg áhrif á lifur.
  • Valdið því að lyfið brotnar hægar niður í líkamanum sem getur valdið óæskilegum aukaverkunum
  • Aukið hættuna á að óvarlega sé farið með lyfin t.d. þannig að þau séu notuð rangt eða inntaka þeirra gleymst.

Þar að auki geta sum lyf haft áhrif á niðurbrot áfengis í líkamanum.

Sýndu sérstaka aðgát ef þú notar eitthvert þessara lyfja og hyggst neyta áfengis

  • Lyf sem verka á miðtaugakerfið s.s. kvíðastillandi lyf, geðlyf, lyf við flogaveiki og sterk verkjalyf
  • Ákveðin sýklalyf s.s. sýklalyf sem innhalda metrónídazól. Notkun áfengis samhliða inntöku þeirra getur valdið miklum óþægindum s.s. uppköstum.
  • Ákveðin lausasölulyf s.s. verkjastillandi og bólgueyðandi lyf

Ráðfærðu þig ávallt við lækni, lyfjafræðing eða lyfjatækni í apóteki ef þú ert í vafa.

 

Sól og áhrif á húðina

Sum lyf geta valdið viðbrögðum í húðinni ef húðin verður fyrir sólarljósi. Þetta á líka við um sólarljós frá sólbaðsstofubekkjum. Þetta kallast ljósnæmi og getur líkst sólbruna. Mikilvægt er að koma í veg fyrir slík viðbrögð.

Síðast uppfært: 2. ágúst 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat