Norræn samvinna um lyfjamál

Efnt hefur verið til samstarfs fjögurra norrænna þjóða um
lyfjamál. Samráðshópurinn (Nordisk Lægemiddel Forum, NLF) var stofnaður árið 2015
að frumkvæði AMGROS, en það er dönsk stofnun rekin af héraðsstjórnum þar í
landi í því markmiði að ná hagstæðum útboðum og samningum í lyfjainnkaupum
fyrir danska markaðinn. Hugmyndin með samráðsnefndinni er að koma á óformlegum
vettvangi sem miðar að því að fá betri yfirsýn, miðla þekkingu og deila
verkefnum í því skyni að stuðla að sameiginlegum lausnum.

Þau lönd sem nú þegar taka þátt í starfinu eru Danmörk,
Ísland, Noregur og Svíþjóð. Löndin eru ekki skuldbundin til að taka þátt í
öllum verkefnum en geta miðað við það sem skiptir máli á hverjum stað. Ábyrgðin
er sameiginleg, sem og fjármögnun verkefnanna. Verkefni eru skipulögð af
stýrihópi þar sem sitja tveir fulltrúar frá hverju landi. Fulltrúar Íslands eru
Hulda Harðardóttir, Landspítala, og Einar Magnússon, velferðarráðuneytinu.

Hugmyndir um sameiginlegt útboð við lyfjainnkaup 

Vinnuhópar á vegum NLF skoða m.a. forspá vegna innleiðingar
nýrra lyfja (horizon scanning), öryggi markaðarins, og möguleika á sameiginlegum
útboðum og/eða verðsamningum vegna lyfjakaupa í því skyni að lækka innkaupskostnað. Í sumar var hafist handa við að kanna slíkan möguleika, m.a. með tilliti til lagalegra sjónarmiða í
hverju landi, en Evrópulöggjöfin virðist ekki koma í veg fyrir að af þessu geti
orðið.  Frekari ákvörðunar að vænta í
byrjun næsta árs.

Nánari upplýsingar
má fá í frétt AMGROS um samráðshópinn

Síðast uppfært: 23. október 2017
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat