3. febrúar 2022
Lyfin Doxylin 100 mg og Doxycyklin EQL Pharma 100 mg eru nú ófáanleg hjá heildsölu. Doxylin 100 mg er væntanlegt aftur þann 13. febrúar og Doxycyklin EQL Pharma 100 mg er væntanlegt til landsins í vikunni.
Ráð til lyfjanotenda:
Enn eru til einhverjar birgðir í apótekum. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.