Sjúklingar haldi áfram að taka metformínlyf

Fréttir hafa birst um innkallanir nokkurra metformínlyfja í Bandaríkjunum vegna þess að magn aðskotaefnisins nítrósamíns reyndist yfir viðmiðunarmörkum.

Lyfjastofnun Evrópu (EMA) metur nú nítrósamínmengun í metformínlyfjum í Evrópu og ráð til notenda lyfjanna eru að sjúklingar haldi áfram að taka þau. Áhættan af heilsutjóni sem fylgdi því að hætta meðferð sykursýki með lyfjunum sé miklu meiri en áhættan af því litla magni af nítrósamíni sem sést hefur í prófunum.

Skilaboð Lyfjastofnunar eru samhljóða skilaboðum EMA. Mikilvægt er að sjúklingar sem taka metformínlyf við sykursýki
haldi áfram að taka lyfin.

Síðast uppfært: 28. október 2020
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat